Lagasafn

Forsetaúrskurður um skiptingu starfa ráðherra

nr. 6/202512 greinar

Texti laganna

1. gr.Forsætisráðherra.

1. gr. Forsætisráðherra. Kristrún Frostadóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir forsætisráðuneytið skv. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið forsætisráðherra.

2. gr.Atvinnuvegaráðherra.

2. gr. Atvinnuvegaráðherra. Hanna Katrín Friðriksson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvegaráðuneytið skv. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið atvinnuvegaráðherra.

3. gr.Dómsmálaráðherra.

3. gr. Dómsmálaráðherra. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir dómsmálaráðuneytið skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið dómsmálaráðherra.

4. gr.Félags- og húsnæðismálaráðherra.

4. gr. Félags- og húsnæðismálaráðherra. [Félags- og húsnæðismálaráðherra. Ragnar Þór Ingólfsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið skv. 4. gr., að undanskildum c-lið 3. tölul., forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið félags- og húsnæðismálaráðherra.] Forsetaúrskurður nr. 4/2026, 1. gr.

5. gr.Fjármála- og efnahagsráðherra.

5. gr. Fjármála- og efnahagsráðherra. Daði Már Kristófersson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið skv. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið fjármála- og efnahagsráðherra.

6. gr.Heilbrigðisráðherra.

6. gr. Heilbrigðisráðherra. Alma D. Möller fer með stjórnarmálefni sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið skv. 6. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið heilbrigðisráðherra.

7. gr.Innviðaráðherra.

7. gr. Innviðaráðherra. Eyjólfur Ármannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir innviðaráðuneytið skv. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið innviðaráðherra.

8. gr.Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

8. gr. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Logi Einarsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið skv. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

9. gr.Mennta- og barnamálaráðherra.

9. gr. Mennta- og barnamálaráðherra. [Mennta- og barnamálaráðherra. Inga Sæland fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið skv. c-lið 3. tölul. 4. gr. og mennta- og barnamálaráðuneytið skv. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið mennta- og barnamálaráðherra.] Forsetaúrskurður nr. 4/2026, 2. gr.

10. gr.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

10. gr. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Jóhann Páll Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið skv. 10. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

11. gr.Utanríkisráðherra.

11. gr. Utanríkisráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir utanríkisráðuneytið skv. 11. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið utanríkisráðherra.

12. gr.

12. gr. Úrskurður þessi öðlast gildi 15. mars 2025. … [Ákvæði til bráðabirgða. I. …] Forsetaúrskurður nr. 87/2025, 3. gr. Forsetaúrskurður nr. 84/2025, 1. gr. [II. …] Forsetaúrskurður nr. 4/2026, 3. gr. Forsetaúrskurður nr. 87/2025, 1. gr. [III. …] Forsetaúrskurður nr. 2/2026, 3. gr. Forsetaúrskurður nr. 87/2025, 2. gr.