Lagasafn

Konungsbréf (til stiftamtmanns) um landshlut af flutningshvölum á Íslandi

nr. 236/17792 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. 1) Ef skotinn hvalur er fluttur til lands á grýtta eða sönduga staði, ellegar fjörur, er öðrum tilheyra, og kann þar að skerast og burt flytjast, svo landeiganda sé enginn skaði að, þá á hann engan hlut í hvalnum; þó á að borga honum þann velvilja, er hann kynni við þvílík tækifæri að auðsýna veiðimönnunum, eftir því sem þeir geta við hann á sáttir orðið.

2. gr.

2. gr. 2) Sé þvílíkur veiddur hvalur fluttur á land á nokkrum þeim stað, hvar skurður, björgun og burtfærsla hans á einhvern hátt spillir annars engjum eða haga, þá skulu veiðimenn betala landeiganda þann skaða og jarðarspell með einum áttunda parti af sjálfum hvalnum.