Lagasafn

Lög um að banna hnefaleika

nr. 92/19563 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Bönnuð er öll keppni eða sýning á hnefaleik. Enn fremur er bannað að kenna hnefaleik.

2. gr.

2. gr. Bönnuð er sala og notkun hnefaleiksglófa og annarra tækja, sem ætluð eru til þjálfunar hnefaleikara. Í reglugerð skal ákveða, hvernig fara skuli með slík tæki, sem nú eru til í landinu.

3. gr.

3. gr. Brot gegn lögum þessum og reglugerð, settri samkvæmt þeim, skal varða sektum … ef ekki liggur þyngri refsing við brotinu samkvæmt öðrum lögum. L. 116/1990, 27. gr.