Lagasafn

Lög um bann við uppsögnum vegna fjölskylduábyrgðar starfsmanna

nr. 27/20002 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Óheimilt er að segja manni upp störfum eingöngu vegna fjölskylduábyrgðar sem hann ber. Með fjölskylduábyrgð er átt við skyldur starfsmanns gagnvart börnum, maka eða nánum skyldmennum sem búa á heimili hans og greinilega þarfnast umönnunar hans eða forsjár, svo sem vegna veikinda eða fötlunar.

2. gr.

2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.