1. gr.
Rétt til að kalla sig [bókasafns- og upplýsingafræðing] og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem til þess hefur leyfi [ráðherra].
L. 21/2001, 1. gr. L. 126/2011, 104. gr.
2. gr.
2. gr.
Leyfi samkvæmt 1. gr. má aðeins veita:
1. [þeim sem lokið hafa BA-prófi frá Háskóla Íslands með bókasafns- og upplýsingafræði sem aðalgrein er jafngildir a.m.k. 60 námseiningum];
2. þeim sem tekið hafa lokapróf frá háskóla og a.m.k. 60 einingar í [bókasafns- og upplýsingafræði] við Háskóla Íslands;
3. þeim sem lokið hafa hliðstæðu prófi erlendis sé námið viðurkennt sem slíkt af yfirvöldum þess lands þar sem námið er stundað;
4. [þeim sem tekið hafa lokapróf frá háskóla og framhaldsgráðu í bókasafns- og upplýsingafræði til viðbótar, þ.e. MA, MLS eða sambærilega háskólagráðu].
[Áður en leyfi er veitt skv. 3. og 4. lið skal leita umsagnar Upplýsingar – félags bókasafns- og upplýsingafræða, Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga og bókasafns- og upplýsingafræðiskorar við félagsvísindadeild Háskóla Íslands.]
L. 21/2001, 2. gr.
3. gr.
3. gr.
[Bókasafns- og upplýsingafræðingi] ber að starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um bókasöfn sem í gildi eru á hverjum tíma.
L. 21/2001, 3. gr.
4. gr.
4. gr.
Brot á lögum þessum varða sektum. …
L. 88/2008, 233. gr.
5. gr.
5. gr.
[Ráðherra] getur sett nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd laga þessara.
L. 126/2011, 104. gr.