Lagasafn

Lög um gæðamat á æðardúni

nr. 52/20055 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Lög þessi gilda um íslenskan æðardún og gæðamat á honum.

2. gr.

2. gr. Allur æðardúnn, hvort sem er til dreifingar á innanlandsmarkaði eða til útflutnings, skal metinn og veginn af lögskipuðum dúnmatsmönnum eftir fullhreinsun. Áður en að dreifingu á innanlandsmarkaði eða til útflutnings kemur skal liggja fyrir að æðardúnn standist gæðamat dúnmatsmanna með vottorði þeirra þar að lútandi.

3. gr.

3. gr. [Ráðuneytið] gefur út leyfi til handa dúnmatsmönnum til starfa á þeim stöðum sem það telur þörf á að fengnum tillögum Bændasamtaka Íslands og Félags íslenskra stórkaupmanna. Dúnmatsmenn skulu undirrita eiðstaf áður en þeir taka til starfa. Kostnaður af störfum þeirra greiðist af matsbeiðanda í samræmi við gjaldskrá sem ráðuneytið staðfestir. Nánar er kveðið á um framkvæmd laganna, starfsskyldur og hæfniskröfur dúnmatsmanna í reglugerð. L. 126/2011, 403. gr. Rg. 350/2011.

4. gr.

4. gr. Brot á lögum þessum varða sektum … L. 88/2008, 233. gr.

5. gr.

5. gr. Lög þessi taka gildi þegar í stað. …