1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að afla tekna til að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun fjölsóttra ferðamannastaða, friðlýstra svæða og þjóðgarða. Jafnframt að afla tekna til þess að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins.
2. gr.Gistináttaskattur.
2. gr. Gistináttaskattur.
[Greiða skal gistináttaskatt af hverri seldri gistináttaeiningu á:
a. gististað sem hefur rekstrarleyfi í flokki II–IV, sbr. 3. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007,
b. tjaldstæði og stæði fyrir húsbíla, tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi.
Greiða skal gistináttaskatt fyrir hvern dvalargest sem hefur gistináttaeiningu til afnota um borð í skemmtiferðaskipi í innanlandssiglingum við Ísland.
Með gistináttaeiningu er átt við leigu á gistiaðstöðu í allt að einn sólarhring, þ.m.t. yfir nótt. Með gistiaðstöðu er átt við húsnæði eða svæði, þar á meðal um borð í skemmtiferðaskipi, sem leigt er út í þeim tilgangi að þar sé dvalið yfir nótt, svefnaðstaða sé fyrir hendi eða hægt sé að koma henni fyrir og leigan sé almennt til skemmri tíma en eins mánaðar.
Gistináttaskattur af hverri seldri gistináttaeiningu skv. 1. mgr. skal vera sem hér segir:
1. Fyrir gistiaðstöðu skv. a-lið 1. mgr.: 800 kr.
2. Fyrir gistiaðstöðu skv. b-lið 1. mgr.: 400 kr.
Gistináttaskattur fyrir hvern dvalargest skv. 2. mgr. skal vera 400 kr. fyrir hvern byrjaðan sólarhring sem farþegi dvelur í skipinu.
Gistináttaskattur samkvæmt ákvæði þessu myndar ekki gjaldstofn til virðisaukaskatts.]
L. 140/2024, 18. gr.
3. gr.Undanþágur frá gistináttaskatti.
3. gr. Undanþágur frá gistináttaskatti.
[Undanþágur frá gistináttaskatti.
Ekki skal greiða gistináttaskatt í eftirfarandi tilvikum:
a. við sölu á gistináttaeiningu sem ekki ber virðisaukaskatt samkvæmt lögum um virðisaukaskatt,
b. fyrir gistiaðstöðu sem áhöfn og annað starfsfólk í skemmtiferðaskipi í innanlandssiglingu við Ísland hefur til umráða um borð í skipinu.]
L. 140/2024, 19. gr.
[3. gr. a. Innviðagjald.
Greiða skal innviðagjald fyrir hvern farþega um borð í skemmtiferðaskipi í millilandasiglingum á meðan skipið dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins, sbr. 2. gr. tollalaga, nr. 88/2005.
Innviðagjald skal vera [1.600 kr.] fyrir hvern farþega fyrir hvern byrjaðan sólarhring sem skipið dvelur á tollsvæði ríkisins skv. 1. mgr.]
L. 99/2025, 55. gr. L. 140/2024, 20. gr.
[3. gr. b. Undanþágur frá innviðagjaldi.
Ekki skal greiða innviðagjald í eftirfarandi tilvikum:
a. ef skemmtiferðaskip í millilandasiglingum leggst að höfn hér á landi og fyrir liggur með sannanlegum hætti að skipið hafi verið í nauðum statt vegna áreksturs, sjóskemmda, veikinda eða ófriðar,
b. fyrir áhöfn og annað starfsfólk um borð í skemmtiferðaskipi í millilandasiglingum.]
L. 140/2024, 20. gr.
4. gr.Skattskyldir aðilar.
4. gr. Skattskyldir aðilar.
[Þeim sem selja gistináttaeiningar skv. 1. mgr. 2. gr. og rekstraraðilum skemmtiferðaskipa í innanlandssiglingum um Ísland skv. 2. mgr. 2. gr. ber skylda til að greiða gistináttaskatt, sbr. þó 3. gr.
Rekstraraðilum skemmtiferðaskipa í millilandasiglingum skv. 3. gr. a ber skylda til að greiða innviðagjald.
Skattskyldir aðilar skv. 1. og 2. mgr. skulu ótilkvaddir senda ríkisskattstjóra tilkynningu um skattskylda starfsemi áður en hún hefst.
Ríkisskattstjóri heldur skrá yfir skattskylda aðila samkvæmt lögum þessum. Rekstraraðilum skemmtiferðaskipa skv. 2. mgr. 2. gr. og skemmtiferðaskipa í millilandasiglingum skv. 3. gr. a er heimilt að skrá sig á gistináttaskattsskrá í eigin nafni.]
L. 140/2024, 21. gr.
5. gr.Álagning gistináttaskatts.
5. gr. Álagning gistináttaskatts.
[Ríkisskattstjóri annast álagningu gistináttaskatts skv. 2. gr.
Skattskyldir aðilar skv. 1. mgr. 4. gr. skulu greiða gistináttaskatt fyrir hvert uppgjörstímabil miðað við fjölda seldra gistináttaeininga eða fjölda farþega skemmtiferðaskips.
Uppgjörstímabil gistináttaskatts skulu vera þau sömu og uppgjörstímabil virðisaukaskatts skv. 1. málsl. 1. mgr. 24. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988. Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
Eigi síðar en á gjalddaga skulu skattskyldir aðilar ótilkvaddir skila Skattinum skýrslu um fjölda seldra gistinátta eða fjölda farþega skemmtiferðaskips á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu skattsins til innheimtumanns ríkissjóðs. Beri gjalddaga gistináttaskatts upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir.
Skýrslur vegna gistináttaskatts skulu vera á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.]
L. 140/2024, 22. gr.
[5. gr. a.
Endurgreiða skal gistináttaskatt á grundvelli alþjóðasamninga og tvíhliða samninga sem Ísland er aðili að, frá þeim tíma er viðkomandi samningur hefur öðlast gildi að því er Ísland varðar. Með sama hætti skal endurgreiða gistináttaskatt til erlends liðsafla og borgaralegra deilda hans, þ.m.t. Atlantshafsbandalagsins, Samstarfs í þágu friðar, herliðs Bandaríkjanna og annarra aðila sem undanþegnir skulu gistináttaskatti samkvæmt alþjóðasamningum, tvíhliða samningum eða sérstökum lögum þar um.]
L. 59/2017, 25. gr.
[5. gr. b. Álagning innviðagjalds.
Ríkisskattstjóri annast álagningu innviðagjalds skv. 3. gr. a.
Uppgjörstímabil innviðagjalds hjá rekstraraðilum skemmtiferðaskipa skv. 2. mgr. 4. gr. telst vera sá tími sem skipið er innan tollsvæðis ríkisins hverju sinni. Gjalddagi er [15] dögum eftir að skip yfirgefur tollsvæði ríkisins.
Eigi síðar en á gjalddaga skulu rekstraraðilar skemmtiferðaskipa ótilkvaddir skila Skattinum skýrslu um fjölda farþega á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu skattsins til innheimtumanns ríkissjóðs. Beri gjalddaga innviðagjalds upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir.
Skýrslur vegna innviðagjalds skulu vera á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.]
L. 103/2025, 20. gr. L. 140/2024, 23. gr.
6. gr.Viðurlög.
6. gr. Viðurlög.
Sé gistináttaskatti [eða innviðagjaldi] ekki skilað á réttum tíma skal skattskyldur aðili sæta álagi til viðbótar skatti samkvæmt skýrslu um fjölda seldra gistináttaeininga [eða fjölda farþega]. Álag skal vera 1% af þeirri fjárhæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó verður það ekki hærra en 10%.
Sé skatti ekki skilað innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er.
Heimilt er innheimtumanni ríkissjóðs að láta lögreglu stöðva atvinnurekstur þess er eigi gerir skil á réttum gjalddaga þar til skil eru gerð, m.a. með því að setja skrifstofur, starfsstöðvar og gistiaðstöðu hans undir innsigli.
L. 140/2024, 24. gr.
7. gr.Ýmis ákvæði.
7. gr. Ýmis ákvæði.
Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um álagningu, innheimtu, tilhögun bókhalds, eftirlit, upplýsingaskyldu, viðurlög, kærur og aðra framkvæmd skulu gilda, eftir því sem við geta átt, ákvæði laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
8. gr.Reglugerðarheimild.
8. gr. Reglugerðarheimild.
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd laga þessara í reglugerð.
9. gr.Gildistaka.
9. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2012 og gilda um þær gistináttaeiningar sem seldar eru frá og með þeim degi.
[Ákvæði til bráðabirgða
I.
Þrátt fyrir ákvæði 2. og 4. gr. skal ekki innheimta gistináttaskatt af sölu gistingar sem veitt er á tímabilinu 1. apríl 2020 til og með 31. desember [2023].
Fari afhending gistiþjónustu fram eftir 31. mars 2020 skal ekki innheimta gistináttaskatt á því tímabili sem um ræðir í 1. mgr. Þetta gildir án tillits til þess hvort samningur um sölu gistiþjónustu hefur verið gerður fyrir 1. apríl 2020.]
L. 131/2021, 39. gr. L. 25/2020, 8. gr.
[II.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 5. gr. skal gjalddagi gistináttaskatts vegna uppgjörstímabilanna janúar og febrúar annars vegar og mars og apríl hins vegar á árinu 2020 vera 5. febrúar 2022.]
L. 25/2020, 8. gr.
[III.
Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. ber ekki að greiða gistináttaskatt vegna sölu gistináttaeiningar sem afhent er á árinu 2024 eða síðar enda sé sölureikningur fyrir heildarverði gistingar gefinn út fyrir 1. janúar 2024.]
L. 102/2023, 5. gr.