Lagasafn

Lög um happdrætti fyrir Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga

nr. 18/19594 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Heimilt skal [Sambandi íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga] að reka vöruhappdrætti með eftirfarandi skilyrðum: a. [Hlutatalan má ekki fara fram úr [80.000]. Draga skal í 12 flokkum á ári hverju og skal dráttur fara fram fyrir einn flokk í mánuði hverjum, í fyrsta sinn í janúarmánuði.] b. Hlutina má selja í heilu og hálfu lagi. Iðgjöld fyrir hvern hlut ákveður [ráðherra] að fengnum tillögum frá stjórn [Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga]. c. Vinningar skulu vera að verðmæti samtals að minnsta kosti 50% af iðgjöldunum samantöldum í öllum tólf flokkum. d. [Dráttur skal fara fram í Reykjavík undir eftirliti nefndar, sem [ráðherra] skipar til þess. Nefndin leggur fullnaðarúrskurð á allan ágreining um lögmæti eða gildi dráttar, bæði meðan dráttur fer fram og eftir að honum er lokið. Kostnað af þessu ber happdrættið.] L. 94/1999, 1. gr. L. 167/2011, 1. gr. L. 115/1984, 1. gr. L. 126/2011, 29. gr. L. 162/2010, 93. gr. L. 52/1976, 1. gr.

2. gr.

2. gr. Vinningar í vöruhappdrætti fyrir [Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga] skulu undanþegnir hvers konar opinberum gjöldum, … á því ári, sem þeir falla til útborgunar. L. 94/1999, 1. gr. L. 129/2004, 34. gr.

3. gr.

3. gr. [[Heimild þessi gildir til 1. janúar 2034.] Ágóða af happdrættinu skal varið til að greiða stofnkostnað við byggingarframkvæmdir Reykjalundar, endurhæfingarmiðstöðvar, til byggingar og rekstrar vinnustofu fyrir öryrkja og til annarrar félagsmálastarfsemi Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga sem viðurkennd er af ríkisstjórninni.] L. 126/2015, 2. gr. L. 94/1999, 2. gr.

4. gr.

4. gr. Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um starfsemi happdrættisins, að fengnum tillögum frá stjórn [Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga]. Rg. 923/2001, sbr. 915/2003, 998/2006, 1002/2010, 1046/2012, 1081/2013, 1066/2015, 1010/2018 og 1241/2022. L. 94/1999, 1. gr.