1. gr.
1. gr.
[Ráðherra] er heimilt að veita Háskóla Íslands [leyfi] til rekstrar happdrættis með þeim skilyrðum, er nú skal greina:
a. [Hlutatalan má ekki fara fram úr 60.000, er skiptist í 12 flokka á ári hverju, og skal dráttur fara fram fyrir einn flokk í mánuði hverjum, dráttur 1. flokks í janúarmánuði og 12. flokks í desembermánuði. Heimilt er að gefa út 4 flokka hlutamiða, sem greinist að með bókstöfunum E, F, G og H, en auk þess er heimilt að gefa út sérstakan flokk, B-flokk, sem hafa skal fimmfalt gildi á við hvern hinna flokkanna, bæði að því er varðar endurnýjunariðgjald og fjárhæð vinninga.]
b. Iðgjald fyrir hvern hlut ákveður [ráðherra] að fengnum tillögum happdrættisráðs og happdrættisstjórnar Háskólans.
c. Vinningar skulu eigi vera færri en svo, að að minnsta kosti fjórði hver miði hljóti vinning árlega að meðaltali, og skal vinningsfjárhæð nema að minnsta kosti 70% af iðgjöldum samantöldum í öllum 12 flokkum.
d. [Dráttur skal fara fram í Reykjavík undir eftirliti nefndar, sem [ráðherra] skipar til þess. Nefndin leggur fullnaðarúrskurð á allan ágreining um lögmæti eða gildi dráttar, bæði meðan dráttur fer fram og eftir að honum er lokið. Kostnað af þessu ber happdrættið.]
e. [Leyfi til að reka happdrættið má veita til 1. janúar 2034.] Ágóðanum skal varið til að reisa byggingar á vegum Háskóla Íslands. Enn fremur er heimilt að verja honum til greiðslu kostnaðar af viðhaldi háskólabygginganna, til fegrunar á háskólalóðinni, til þess að koma á fót og efla rannsóknarstofur við hinar ýmsu deildir Háskólans, svo og til að greiða andvirði rannsóknar- og kennslutækja, sem Háskólinn telur sér nauðsyn að eignast. [Leyfishafi greiði í ríkissjóð 20% af nettóársarði í leyfisgjald, þó ekki hærri fjárhæð en 150.000.000 kr.]
[[Ráðherra] er enn fremur heimilt að veita Háskóla Íslands [leyfi] til rekstrar skyndihappdrættis með peningavinningum, svo og peningahappdrættis sem ekki yrði rekið sem flokkahappdrætti. Ágóða af rekstri þessum skal varið til starfsemi Háskóla Íslands svo sem segir í e-lið 1. mgr.]
[[Ráðherra] getur heimilað að við starfsemi skv. 1. og 2. mgr. séu notaðar sérstakar happdrættisvélar þannig að þátttaka, ákvörðun um vinning og greiðsla á honum fari fram vélrænt og samstundis og enn fremur að slíkar happdrættisvélar séu samtengdar, einstakar vélar og á milli sölustaða. [Ráðherra] setur með reglugerð m.a. nánari ákvæði um staðsetningu, auðkenningu, fjölda og tegundir happdrættisvéla, eftirlit með þeim, notkun mynta og seðla við greiðslu fyrir þátttöku, fjárhæð vinninga og aldur þeirra sem mega nota vélarnar. Lágmarksaldur þátttakenda skal þó vera 16 ár.]
L. 126/2011, 58. gr. L. 75/2006, 1. gr. L. 96/1974, 1. gr. L. 162/2010, 106. gr. L. 55/1976, 1. gr. L. 126/2015, 1. gr. L. 75/2006, 2. gr. L. 23/1986, 1. gr. Rg. 455/1993, sbr. 401/2007. L. 77/1994, 1. gr.