1. gr.
1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd alþjóðasamþykkt um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna, sem gerð var í Brüssel 10. október 1957. Fyrirvara má gera um einstök ákvæði, sem ríkisstjórninni þykir við eiga og heimilt er að gera samkvæmt samþykktinni.
Samþykktin er prentuð á íslensku og ensku sem fylgiskjöl með lögum þessum.
Sjá Stjtíð. A 1968, bls. 26–37.