Lagasafn

Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um gagnkvæma aðstoð í tollamálum

nr. 94/19803 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um gagnkvæma aðstoð í tollamálum. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með lögum þessum. [Ríkisstjórninni er enn fremur heimilt að staðfesta breytingu á samningnum sem gerð var með samningi 3. ágúst 1989.] Sjá Stjtíð. A 1980, bls. 241–344, sbr. l. 24/1990, 3. gr. L. 24/1990, 1. gr.

2. gr.

2. gr. [Ákvæði samningsins með áorðnum breytingum skulu hafa lagagildi hér á landi.] L. 24/1990, 2. gr. Augl. C 19/1981 og 12/1982.

3. gr.

3. gr. [Ráðherra] setur nánari reglur um framkvæmd laga þessara. L. 126/2011, 85. gr.