Lagasafn

Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Norðurlanda um aðstoð í skattamálum

nr. 46/19903 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Norðurlanda um aðstoð í skattamálum sem undirritaður var í Kaupmannahöfn 7. desember 1989 og prentaður er sem fylgiskjal með lögum þessum. Sjá Stjtíð. A 1990, bls. 77–84.

2. gr.

2. gr. Þegar samningur sá, er um ræðir í 1. gr., hefur öðlast gildi að því er Ísland varðar skulu ákvæði hans hafa lagagildi hér á landi. …

3. gr.

3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.