Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972
nr. 7/19753 greinar
Texti laganna
1. gr.
1. gr.
[Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, sem undirrituð var í Lundúnum 20. október 1972.
[Ríkisstjórninni er enn fremur heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á alþjóðareglunum sem gerðar voru í Lundúnum 19. nóvember 1981, 19. nóvember 1987, 19. október 1989, 4. nóvember 1993 og 29. nóvember 2001.]
Alþjóðareglurnar með áorðnum breytingum eru prentaðar sem fylgiskjal með lögum þessum.]
L. 10/2006, 1. gr. L. 19/1993, 1. gr.
2. gr.
2. gr.
[Alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó hafa lagagildi á Íslandi. [Ráðherra] er heimilt að setja nánari ákvæði í reglugerð skv. 1. reglu alþjóðareglnanna.]
L. 126/2011, 63. gr. Rg. 524/2008, sbr. 361/2009 og 1195/2022. L. 10/2006, 2. gr.
4. gr.
4. gr.
[Brot gegn alþjóðareglunum og viðaukum, sem reglunum fylgja, varða sektum ef ekki liggur þyngri refsing við eftir öðrum lögum.]
L. 10/2006, 3. gr.
Fylgiskjal.
Alþjóðasamningur um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, með breytingum.
Sjá Stjtíð. A 2006, bls. 53–82.