Lagasafn

Lög um Loftslags- og orkusjóð

nr. 76/20209 greinar

Texti laganna

1. gr.Loftslags- og orkusjóður.

1. gr. [Loftslags- og orkusjóður.] Starfrækja skal sjóð í eigu íslenska ríkisins sem nefnist [Loftslags- og orkusjóður]. Ríkið ber ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins og heyrir hann stjórnarfarslega undir ráðherra. L. 66/2024, 2. gr. L. 66/2024, 1. gr.

2. gr.Hlutverk.

2. gr. Hlutverk. Hlutverk [Loftslags- og orkusjóðs] er að stuðla að hagkvæmri nýtingu orkuauðlinda landsins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða er miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og auka nýtingu á innlendum endurnýjanlegum orkugjöfum. [Loftslags- og orkusjóður] styður jafnframt við verkefni sem stuðla að orkuöryggi og samkeppnishæfni á sviði orkumála og orkutengd verkefni á grundvelli orkustefnu, nýsköpunarstefnu, byggðastefnu og stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum. [Loftslags- og orkusjóður skal enn fremur styðja við nýsköpunar- og innviðaverkefni á sviði loftslagsmála, verkefni sem stuðla að innleiðingu hringrásarhagkerfisins og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Jafnframt er hlutverk Loftslags- og orkusjóðs að sjá um beinar stuðningsaðgerðir, svo sem styrki til kaupa á rafbílum og styrki til jarðhitaleitar, eftir atvikum hverju sinni.] L. 66/2024, 1. gr. L. 66/2024, 3. gr.

3. gr.Stjórn.

3. gr. Stjórn. [Ráðherra skipar fimm einstaklinga í stjórn Loftslags- og orkusjóðs til fjögurra ára. Formaður skal skipaður án tilnefningar og honum til viðbótar skipar ráðherra einn fulltrúa án tilnefningar, einn fulltrúa, sem hefur þekkingu á loftslagsmálum, samkvæmt tilnefningu háskólasamfélagsins, einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins og einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu umhverfisverndarsamtaka.] Stjórn [Loftslags- og orkusjóðs] skal hafa yfirumsjón með umsýslu sjóðsins í samræmi við hlutverk hans. [Umhverfis- og orkustofnun] annast daglega umsýslu [Loftslags- og orkusjóðs] undir yfirstjórn stjórnar sjóðsins. [Stjórninni er þó heimilt að framselja óháðum aðila faglega umsýslu sjóðsins samkvæmt samningi.] [Ákvarðanir sem teknar eru um að veita styrki úr Loftslags- og orkusjóði eru endanlegar á stjórnsýslustigi.] L. 66/2024, 4. gr. L. 66/2024, 1. gr. L. 110/2024, 8. gr.

4. gr.Fjármögnun verkefna.

4. gr. Fjármögnun verkefna. Stjórn [Loftslags- og orkusjóðs] gerir tillögur til ráðherra um lánveitingar … úr [Loftslags- og orkusjóði] í samræmi við áherslur og stefnumótun stjórnvalda sem og fjárhags- og greiðsluáætlun sjóðsins. [Loftslags- og orkusjóði] er ekki heimilt að veita [Umhverfis- og orkustofnun] styrki eða lán af fé sjóðsins. L. 66/2024, 1. gr. L. 66/2024, 5. gr. L. 110/2024, 8. gr.

5. gr.Eftirlit.

5. gr. Eftirlit. Þeir sem hljóta styrk eða lán frá [Loftslags- og orkusjóði] skulu gera grein fyrir framvindu verkefna og ráðstöfun fjár samkvæmt nánari reglum stjórnar [Loftslags- og orkusjóðs]. Ríkisendurskoðun annast árlega endurskoðun reikninga [Loftslags- og orkusjóðs]. L. 66/2024, 1. gr.

6. gr.Tekjur.

6. gr. Tekjur. Tekjur [Loftslags- og orkusjóðs] eru framlag úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun Alþingis á fjárlögum hverju sinni og vextir af fé sjóðsins. L. 66/2024, 1. gr.

7. gr.Kostnaður af rekstri.

7. gr. Kostnaður af rekstri. Kostnaður af rekstri [Loftslags- og orkusjóðs] greiðist af tekjum hans eða eigin fé. L. 66/2024, 1. gr.

8. gr.Reglugerðarheimild.

8. gr. Reglugerðarheimild. Ráðherra skal setja í reglugerð nánari fyrirmæli um skilyrði fyrir framlögum úr [Loftslags- og orkusjóði], undirbúning úthlutunar, lánveitingar, þ.m.t. vexti og önnur útlánakjör, greiðslur, eftirlit með framkvæmdum sem [Loftslags- og orkusjóður] veitir fé til og heimildir til að fella niður endurgreiðsluskyldu lántaka. Stjórn [Loftslags- og orkusjóðs] getur sett nánari reglur og skilyrði um tilfærslu fjármuna milli einstakra verkefna ef nauðsyn krefur. Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um starfsemi og skipulag [Loftslags- og orkusjóðs] og framkvæmd laga þessara. L. 66/2024, 1. gr. Rg. 1566/2024.

9. gr.Gildistaka.

9. gr. Gildistaka. Lög þessi öðlast þegar gildi. …