Lagasafn

Lög um norrænan tækni- og iðnþróunarsjóð

nr. 54/19732 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd samning ríkisstjórna Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun norræns tækni- og iðnþróunarsjóðs, sem gerður var í Osló 20. febrúar 1973. Texti samningsins fylgir lögum þessum og telst hluti af þeim, og skulu ákvæði hans hafa lagagildi hér á landi. Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með lögunum í Lagasafni 1995, bls. 840–841.

2. gr.

2. gr. Sjóðurinn er undanþeginn opinberum gjöldum og sköttum hér á landi. Sjóðurinn er undanþeginn stimpilgjöldum af lánum og öðrum fjárskuldbindingum, er hann kann að taka á sig hér á landi.