Lagasafn

Lög um norrænan þróunarsjóð

nr. 14/19895 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Stofna skal norrænan þróunarsjóð samkvæmt samningi milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun norræns þróunarsjóðs sem undirritaður var í Stokkhólmi 3. nóvember 1988.

2. gr.

2. gr. Sjóðurinn skal undanþeginn ákvæðum laga63/1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, svo og annarra laga er setja kunna hömlur á greiðslur í erlendum gjaldeyri eða gjaldeyrisviðskipti, að svo miklu leyti sem slík ákvæði hindra eða torvelda starfsemi sjóðsins eða efndir skuldbindinga hans. Nú l. 87/1992.

3. gr.

3. gr. Sjóðurinn skal vera undanþeginn aðstöðugjaldi, landsútsvari [og tekjuskatti], svo og öðrum gjöldum sem lögð kunna að vera á tekjur, eignir eða veltu til ríkis eða sveitarfélaga. L. 129/2004, 80. gr.

4. gr.

4. gr. Lánssamningar, sem sjóðurinn er aðili að, skulu vera undanþegnir stimpilgjöldum og öðrum gjöldum hins opinbera.

5. gr.

5. gr. Lög þessi öðlast gildi um leið og samningur um norrænan þróunarsjóð.