Lagasafn

Lög um norrænt fjármögnunarfélag á sviði umhverfisverndar

nr. 102/19905 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Stofna skal norrænt fjármögnunarfélag samkvæmt samningi milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun norræns fjármögnunarfélags á sviði umhverfismála sem undirritaður var í Reykjavík 2. mars 1990.

2. gr.

2. gr. Félagið skal undanþegið ákvæðum laga63/1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, svo og annarra laga er setja kunna hömlur á greiðslur í erlendum gjaldeyri eða gjaldeyrisviðskipti, að svo miklu leyti sem slík ákvæði hindra eða torvelda starfsemi félagsins eða efndir skuldbindinga þess. Nú l. 87/1992.

3. gr.

3. gr. Félagið skal undanþegið aðstöðugjaldi, landsútsvari [og tekjuskatti], svo og öðrum gjöldum sem lögð kunna að vera á tekjur, eignir eða veltu til ríkis eða sveitarfélaga. L. 129/2004, 82. gr.

4. gr.

4. gr. Lánssamningar, sem félagið er aðili að, skulu vera undanþegnir stimpilgjöldum og öðrum gjöldum hins opinbera.

5. gr.

5. gr. Lög þessi öðlast gildi þegar í stað.