Lagasafn

Lög um notkun raflagna og raffanga í núverandi ástandi á íbúðar- og skólasvæði fyrrum varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli

nr. 135/20073 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Heimilt er að nota raflagnir og rafföng í núverandi ástandi á íbúðar- og skólasvæði fyrrum varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli til 1. október 2010. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. skal fyrir 1. október 2007 leggja fram verkáætlun til [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar] um hvernig staðið verði að breytingum til samræmis við íslenskar kröfur fyrir 1. október 2010. L. 137/2019, 19. gr.

2. gr.

2. gr. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. skal tilnefna umsjónarmann öryggismála á svæðinu sem starfi í samvinnu við [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]. Hann skal uppfylla þær hæfniskröfur sem gerðar eru í reglugerð nr. 264/1971, um raforkuvirki, með síðari breytingum. L. 137/2019, 19. gr.

3. gr.

3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.