Lagasafn

Lög um sameiningu Borgarfjarðarhrepps og Loðmundarfjarðarhrepps í Norður-Múlasýslu í einn hrepp

nr. 40/19724 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Borgarfjarðarhreppur og Loðmundarfjarðarhreppur í Norður-Múlasýslu skulu vera einn hreppur, sem heitir Borgarfjarðarhreppur.

2. gr.

2. gr. Kostnaður við fjallskil á eyðilöndum í Loðmundarfirði skiptist þannig, að eigendur eyðijarða bera /4, sveitarfélög þau, er fjárvon eiga í löndum þessum, sameiginlega /2 og ríkið /4. Kostnaður eyðijarðaeigenda skiptist á milli þeirra í réttu hlutfalli við landverð eyðijarðanna samkvæmt gildandi fasteignamati. Sá hluti fjallskilakostnaðarins, sem kemur í hlut sveitarfélaganna samkvæmt grein þessari, skiptist á milli þeirra í réttu hlutfalli við tölu þess fjár, sem kemur af fjalli og tilheyrir íbúum hvors þeirra fyrir sig. … Sýslumaður Norður-Múlasýslu annast innheimtu á framlögum til greiðslu fjallskilakostnaðarins. L. 73/1996, 33. gr.

3. gr.

3. gr. Kostnaður við eyðingu refa og minka í Loðmundarfirði samkvæmt lögum52 5. júní 1957 endurgreiðist Borgarfjarðarhreppi næstu fimm árin úr ríkissjóði, enda verði framkvæmd við eyðingu refa og minka hagað í samráði við veiðistjóra ríkisins.

4. gr.

4. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1973.