Lagasafn

Lög um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra

nr. 129/19907 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Markmið laga þessara er að stuðla að jafnrétti heyrnarlausra til þjónustu sem víðast í þjóðfélaginu á grundvelli táknmáls heyrnarlausra.

2. gr.

2. gr. Hlutverk Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra er að annast: a. rannsóknir á íslensku táknmáli, b. kennslu táknmáls, c. táknmálstúlkun, d. aðra þjónustu. Um skipan þjónustunnar skal kveðið á í reglugerð. Stofnunin skal hafa samstarf við svæðisstjórnir um málefni [fatlaðs fólks], [Ráðgjafar- og greiningarstöð], Heyrnleysingjaskólann, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Námsgagnastofnun og aðra opinbera aðila varðandi málefni er snerta starfsemi þeirra. Sama gildir um samstarf við félög áhugamanna. Rg. 1058/2003, sbr. 884/2004. L. 115/2015, 28. gr. L. 85/2021, 15. gr. [2. gr. a. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra er heimil vinnsla persónuupplýsinga að því marki sem nauðsynlegt er í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu, svo sem vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga um heilsufar vegna beiðna um táknmálstúlkaþjónustu, kennslu táknmáls og máltöku barna og í þágu rannsókna á íslensku táknmáli. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra er heimil öflun og miðlun persónuupplýsinga þegar nauðsyn krefur, þ.m.t. til og frá leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum, félags- og skólaþjónustu sveitarfélaga, Ráðgjafar- og greiningarstöð, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, [Sjónstöðinni] og aðilum samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um vinnslu persónuupplýsinga í reglugerð samkvæmt þessu ákvæði.] L. 31/2025, 5. gr. L. 89/2021, 9. gr. II. kafli. Stjórnun.

3. gr.

3. gr. [Ráðherra] skipar stofnuninni fimm manna stjórn til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara: a. einn fulltrúa tilnefndan af Félagi heyrnarlausra, b. einn fulltrúa tilnefndan af Foreldra- og styrktarfélagi heyrnardaufra, c. [tvo fulltrúa tilnefnda af [ráðherra er fer með málefni fatlaðs fólks],] [d.] skipar [ráðherra] einn fulltrúa án tilnefningar. Skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. L. 126/2011, 149. gr. L. 162/2010, 7. gr.

4. gr.

4. gr. [Ráðherra] skipar forstöðumann til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar. Hann á sæti á fundum stjórnarinnar með málfrelsi og tillögurétti og sér um framkvæmd á ákvörðunum hennar. Forstöðumaður annast daglegan rekstur stofnunarinnar. L. 126/2011, 149. gr.

5. gr.

5. gr. [Forstöðumaður ræður annað starfsfólk.] L. 83/1997, 125. gr.

6. gr.

6. gr. Samskiptamiðstöð gerir fjárhags- og framkvæmdaáætlun til allt að fimm ára. Stjórn stofnunarinnar staðfestir áætlanir og fylgist með framkvæmd þeirra. [Ráðherra] getur, að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar, sett gjaldskrá fyrir þá þjónustu sem samskiptamiðstöðin veitir. L. 126/2011, 149. gr.

7. gr.

7. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Lögin skal endurskoða innan fjögurra ára frá gildistöku þeirra.