Lagasafn

Lög um selaskot á Breiðafirði og uppidráp

nr. 30/19252 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Öll selaskot skulu hér eftir bönnuð á Breiðafirði og fjörðum þeim, sem inn úr honum ganga, fyrir innan línu, sem hugsast dregin frá Eyrarfjalli, sunnan Breiðafjarðar, í Stagley og frá Stagley hálfa mílu frá Oddbjarnarskeri nyrðra í Bjargtanga í Barðastrandarsýslu. … Í selalátrum á bannsvæðinu er engum öðrum en eigendum eða umráðamönnum látranna heimilt að rota seli eða drepa uppi. L. 61/1932, 94. gr.

2. gr.

2. gr. [Brot gegn 1. gr. varðar sektum. Skotvopn og veiðifang má gera upptækt, sbr. 69. gr. almennra hegningarlaga,19/1940.] L. 116/1990, 15. gr.