Lagasafn

Lög um Slysavarnaskóla sjómanna

nr. 33/19916 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. [Slysavarnafélagið Landsbjörg] skal starfrækja Slysavarnaskóla sjómanna og fer Slysavarnafélagið með yfirstjórn skólans er starfar á vegum þess og ábyrgð. Markmið skólans er að auka öryggi sjómanna með fræðslu og þjálfun í meðferð björgunar- og öryggisbúnaðar og almennri fræðslu um slysavarnir á sjó. [Slysavarnafélagið Landsbjörg skal halda fjárreiðum skólans aðskildum frá öðrum rekstri og starfsemi félagsins og er í þeim tilgangi heimilt að hafa rekstur skólans í sérstöku félagi.] L. 81/2022, 1. gr.

2. gr.

2. gr. Slysavarnaskóli sjómanna skal halda námskeið fyrir starfandi og verðandi sjómenn um öryggis- og björgunarmál á helstu útgerðarstöðum landsins og annast öryggis- og slysavarnafræðslu fyrir nemendur í skipstjórnar- og vélstjórnarnámi. Aðalkennslugreinar skólans eru: Fræðsla um öryggismál, slysavarnir, björgunaraðferðir, skyndihjálp, flutningur sjúkra og slasaðra, meðferð björgunarbúnaðar, slökkvibúnaðar og reykköfunartækja.

3. gr.

3. gr. [Ráðherra] skipar fimm manna skólanefnd Slysavarnaskóla sjómanna til fjögurra ára í senn. Einn skal tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands, einn af [Félagi skipstjórnarmanna] og þrír tilnefndir af [Slysavarnafélaginu Landsbjörg]. Ráðherra skipar einn fulltrúa [Slysavarnafélagsins Landsbjargar] formann skólanefndar. Meginhlutverk skólanefndar er að [vera ráðgefandi um fagleg] málefni Slysavarnaskólans …. Skólanefnd gerir, að fenginni umsögn öryggisfræðslunefndar sjómanna, tillögur til stjórnar [Slysavarnafélagsins Landsbjargar] um námskeiðahald, námsskrá og lengd námskeiða á vegum skólans. L. 126/2011, 155. gr. L. 81/2022, 2. gr.

4. gr.

4. gr. [Slysavarnafélagið Landsbjörg] ræður skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna, [að fenginni umsögn skólanefndar], en um mannaráðningar fer samkvæmt lögum [félagsins]. L. 81/2022, 3. gr.

5. gr.

5. gr. Kostnaður við rekstur skólans skal greiddur úr ríkissjóði [samkvæmt þjónustusamningi]. … L. 81/2022, 4. gr.

6. gr.

6. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði til bráðabirgða. …