Lagasafn

Lög um stofnun Landsnets hf.

nr. 75/20048 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. [Ráðherra] skal beita sér fyrir stofnun hlutafélags er skal annast raforkuflutning og kerfisstjórnun samkvæmt ákvæðum III. kafla raforkulaga, nr. 65/2003. [Ráðherra] annast undirbúning að stofnun Landsnets hf. og fer með framkvæmd laga þessara. L. 126/2011, 386. gr.

2. gr.

2. gr. [Hlutverk Landsnets hf. er að annast flutning raforku og kerfisstjórnun samkvæmt ákvæðum III. kafla raforkulaga, nr. 65/2003, og er því óheimilt að stunda aðra starfsemi en þá sem því er nauðsynleg til að geta rækt skyldur sínar samkvæmt raforkulögum eða öðrum lögum.] Hlutafélaginu er þó heimilt að reka raforkumarkað. Stjórn Landsnets hf. skal vera sjálfstæð gagnvart öðrum fyrirtækjum sem stunda vinnslu, dreifingu eða sölu raforku eftir því sem nánar er ákveðið í samþykktum þess. L. 30/2008, 12. gr.

3. gr.

3. gr. … L. 24/2018, 8. gr.

4. gr.

4. gr. Landsnet hf. skal frá 1. janúar 2005 annast rekstur þeirra flutningsvirkja er falla undir skilgreiningu 6. tölul. 3. gr. raforkulaga, nr. 65/2003. Fram að þeim tíma skal það undirbúa reksturinn m.a. með því að koma fram gagnvart eigendum flutningsvirkja við mat á verðmæti slíkra eigna, sbr. ákvæði til bráðabirgða XI í sömu lögum. Heimilt skal að selja allt hlutafé ríkissjóðs í Landsneti hf. þegar flutningsvirki skv. 6. tölul. 3. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, hafa verið metin endanlegu mati og fyrir liggur hvort eigendur þeirra kjósa að leggja flutningsvirkin inn í Landsnet hf. sem hlutafé. … L. 74/2021, 19. gr.

5. gr.

5. gr. Í stofnyfirlýsingu Landsnets hf. skal mælt fyrir um þau atriði sem áskilið er að fram komi í stofnsamningi samkvæmt hlutafélagalögum að öðru leyti en getið er um í lögum þessum.

6. gr.

6. gr. Um skattskyldu Landsnets hf. skal fara eins og um skattskyldu annarra orkufyrirtækja.

7. gr.

7. gr. Stofna skal Landsnet hf. á stofnfundi sem haldinn skal eigi síðar en 1. júní 2004. Á fundinum skal kjósa stjórn Landsnets hf. og skal hún starfa þar til ný stjórn hefur verið kosin á fyrsta aðalfundi eftir að lokaniðurstaða verðmats flutningsvirkja samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XI í raforkulögum, nr. 65/2003, liggur fyrir. Fram að því tímamarki skal Landsnet hf. hafa það verkefni að undirbúa starfsemi sína.

8. gr.

8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.