Lagasafn

Lög um svæðaskiptingu Keflavíkurflugvallar

nr. 176/20067 greinar

Texti laganna

1. gr.Svæðaskipting.

1. gr. [Svæðaskipting. Með lögum þessum er kveðið á um svæðaskiptingu Keflavíkurflugvallar. Ráðherra sem fer með málefni öryggissvæða skal með auglýsingu birta uppdrátt um ytri mörk og innri skiptingu svæðisins í flugvallarsvæði (svæði A) og öryggissvæði (svæði B). Áður en slík auglýsing er birt skal aflað umsagnar samgönguyfirvalda og skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar. Ef breyta þarf auglýstum ytri mörkum svæða skv. 2. mgr. er ráðherra heimilt að semja um slíka breytingu við hlutaðeigandi sveitarfélag.] L. 47/2021, 1. gr.

2. gr.Flugvallarsvæði.

2. gr. Flugvallarsvæði. Flugvallarsvæði, þ.e. flugbrauta- og flugverndarsvæði, Keflavíkurflugvallar … er afmarkað sem svæði A í fylgiskjali. … L. 47/2021, 2. gr.

3. gr.Öryggissvæði.

3. gr. Öryggissvæði. [Ráðherra] fer með yfirstjórn öryggissvæðis sem afmarkað er sem svæði B í fylgiskjali. Öryggissvæðið er ætlað til varnarþarfa, þ.m.t. heræfinga og eftir atvikum friðargæsluæfinga, m.a. á vegum Bandaríkjanna eða annarra ríkja Atlantshafsbandalagsins. … L. 126/2011, 445. gr. L. 34/2008, 30. gr.

4. gr.

4. gr. … L. 47/2021, 3. gr.

5. gr.Opinber gjöld.

5. gr. Opinber gjöld. Fasteignir ríkisins og mannvirki sem Bandaríkin eða Atlantshafsbandalagið hafa skilað til eignar, [á svæði skv. 2. gr.], eru undanþegin öllum opinberum gjöldum og skyldutryggingu fasteigna. Sú undanþága fellur niður er þeim hefur verið ráðstafað með leigu eða sölu enda sé ekki sérstaklega mælt fyrir um undanþágu frá slíkum gjöldum í öðrum lögum. Undanþágan gildir einnig þótt gefin sé út auglýsing um svæðin skv. 2. mgr. 1. gr. … L. 47/2021, 4. gr. L. 34/2008, 30. gr.

6. gr.Gildistaka.

6. gr. Gildistaka. Lög þessi öðlast þegar gildi. … L. 47/2021, 5. gr.

7. gr.

7. gr. … Fylgiskjal. … Sjá Stjtíð. A 2006, bls. 787.