1. gr.
Þjóðsöngur Íslendinga er „Ó Guð vors lands“, ljóð eftir Matthías Jochumsson og lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.
2. gr.
2. gr.
Þjóðsöngurinn er eign íslensku þjóðarinnar, og fer [ráðuneytið] með umráð yfir útgáfurétti á honum.
L. 126/2011, 96. gr.
3. gr.
3. gr.
Þjóðsönginn skal ekki flytja eða birta í annarri mynd en hinni upprunalegu gerð. Ekki er heimilt að nota þjóðsönginn á nokkurn hátt í viðskipta- eða auglýsingaskyni.
4. gr.
4. gr.
Nú rís ágreiningur um rétta notkun þjóðsöngsins og sker þá [ráðherra] úr.
L. 126/2011, 96. gr.
5. gr.
5. gr.
Með forsetaúrskurði skal setja nánari ákvæði um notkun þjóðsöngsins, ef þörf þykir.
6. gr.
6. gr.
Brot gegn ákvæðum laga þessara varða sektum eða [fangelsi allt að 2 árum]. …
L. 82/1998, 171. gr. L. 88/2008, 233. gr.