Lagasafn

Lög um umhverfis- og auðlindaskatta

nr. 129/200917 greinar

Texti laganna

1. gr.Gjaldskyldir aðilar.

1. gr. Gjaldskyldir aðilar. [Greiða skal í ríkissjóð kolefnisgjald af eldsneyti sem inniheldur kolefni af jarðefnauppruna og notað er á fljótandi eða loftkenndu formi eða í iðnaðarferlum þannig að sú notkun leiði til losunar koltvísýrings í andrúmsloftið. Með eldsneyti sem inniheldur kolefni af jarðefnauppruna á fljótandi eða loftkenndu formi er átt við gas- og dísilolíu, bensín, brennsluolíu og jarðolíugas og annað loftkennt kolvatnsefni. Fjárhæð kolefnisgjalds skal vera [28,30 kr.] á hvern lítra af gas- og dísilolíu, [24,25 kr.] á hvern lítra af bensíni, [33,10 kr.] á hvert kílógramm af brennsluolíu og [28,45 kr.] á hvert kílógramm af jarðolíugasi og öðru loftkenndu kolvatnsefni.] L. 100/2025, 29. gr. L. 146/2012, 15. gr. Gjaldskyldir aðilar.

2. gr.Álagning, innheimta, eftirlit o.fl.

2. gr. Álagning, innheimta, eftirlit o.fl. Gjaldskyldir aðilar samkvæmt lögum þessum eru: 1. Allir þeir sem flytja til landsins vöru sem gjaldskyld er samkvæmt lögum þessum, hvort sem er til endursölu eða eigin nota. 2. Allir þeir sem framleiða hér á landi vöru sem gjaldskyld er samkvæmt lögum þessum, vinna að framleiðslu hennar eða setja saman, hvort sem er til endursölu eða eigin nota. [Aðilar sem eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 10. mgr. 42. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, eru undanþegnir gjaldskyldu í samræmi við sérlög eða ákvæði alþjóðasamninga eða tvíhliða samninga.] Gjaldskyldum aðilum ber að standa skil á kolefnisgjaldi við tollafgreiðslu ef um innflutning er að ræða en við afhendingu í tilviki innlendrar framleiðslu eða aðvinnslu. L. 59/2017, 23. gr. Álagning, innheimta, eftirlit o.fl.

3. gr.Endurgreiðsla vegna sjóflutninga.

3. gr. [Endurgreiðsla vegna sjóflutninga.] [Tollyfirvöld] annast álagningu … kolefnisgjalds samkvæmt lögum þessum og [hafa] með höndum eftirlit. Gjöld, sem lögð eru á samkvæmt lögum þessum, mynda gjaldstofn til virðisaukaskatts. [Ríkisskattstjóri annast innheimtu kolefnisgjalds.] L. 141/2019, 64. gr. L. 142/2018, 39. gr. [Endurgreiðsla vegna sjóflutninga.] L. 100/2025, 29. gr. [3. gr. a. Endurgreiða skal skipafélagi fjárhæð sem sannanlega hefur verið greidd vegna kaupa á losunarheimild skips í sjóflutningum á vörum á milli hafna hér á landi samkvæmt lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023, vegna losunar frá og með 1. janúar 2026 að eftirtöldum skilyrðum uppfylltum: a. Skip sé í sjóflutningum á vörum á milli hafna hér á landi og falli undir lög um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023. b. Skipafélag hafi sent Umhverfis- og orkustofnun losunarskýrslu fyrir skip, upplýsingar um þær sjóferðir sem farnar voru milli hafna hér á landi og upplýsingar um þann fjölda losunarheimilda sem skilað var inn vegna sjóflutninga á vörum á milli hafna hér á landi. c. Skipafélag sýni fram á að greitt hafi verið kolefnisgjald af eldsneyti skips skv. a- og b-lið. d. Skipafélag hafi fyrir 30. september ár hvert staðið skil á fjölda losunarheimilda í samræmi við 2. mgr. 12. gr. laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023, vegna losunar á því almanaksári sem umsókn um endurgreiðslu tekur til. Endurgreiðsla skal að hámarki nema þeirri fjárhæð sem greidd hefur verið í kolefnisgjald af því eldsneyti sem nýtt hefur verið á skip í sjóflutningum á vörum á milli hafna hér á landi. Skipafélag sem óskar eftir endurgreiðslu skal sækja um endurgreiðsluna í sérstakri skýrslu til ríkisskattstjóra á því formi sem hann ákveður. Leggja skal fram þær upplýsingar og gögn sem nauðsynleg eru til afgreiðslu umsóknar, svo sem staðfestingu Umhverfis- og orkustofnunar á uppgjöri losunarheimilda og ríkisskattstjóra á greiðslu kolefnisgjalds. Þá skal jafnframt skila gögnum um þá fjárhæð sem greidd hefur verið vegna kaupa á losunarheimildum skips í sjóflutningum á vörum á milli hafna hér á landi. Fjárhæð sem sótt er um endurgreiðslu á hverju sinni skal vera að lágmarki 10.000 kr. Fallist ríkisskattstjóri á umsóknina án frekari skýringa skal endurgreiðsla fara fram eigi síðar en 30 dögum eftir að umsókn er lögð fram, enda hafi fullnægjandi upplýsingar og gögn fylgt henni.] L. 100/2025, 29. gr. Ýmis ákvæði.

4. gr.Skattur af raforku og heitu vatni.

4. gr. Skattur af raforku og heitu vatni. Að því leyti sem eigi er kveðið á um gjaldskyldu, álagningu, úrskurð um flokkun til gjaldskyldu, eftirlit, innheimtu, vörslusviptingu, uppboð, sektir, viðurlög, refsingar og aðra framkvæmd varðandi kolefnisgjald, skv. I. kafla laga þessara, skulu gilda ákvæði tollalaga, nr. 88/2005, [um innfluttar vörur og ákvæði laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, um innlendar framleiðsluvörur], eftir því sem við getur átt, svo og reglugerða og annarra fyrirmæla settra samkvæmt þeim. Ráðherra getur með reglugerð sett nánari fyrirmæli um framkvæmd laga þessara. L. 124/2014, 4. gr. II. kafli. Skattur af raforku og heitu vatni.

5. gr.Skattskyldir aðilar.

5. gr. Skattskyldir aðilar. Greiða skal í ríkissjóð sérstakan skatt af seldri raforku og heitu vatni eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum. [Skattinn skal þó ekki greiða af heitu vatni frá kyntum hitaveitum.] … Fjárhæð skatts af heitu vatni skal vera 2,0% af smásöluverði á heitu vatni. Heimilt er að miða innheimtu skatts af raforku og heitu vatni við áætlaða sölu. L. 127/2024, 50. gr. L. 146/2012, 17. gr. Skattskyldir aðilar.

6. gr.

6. gr. Skattskyldan nær til þeirra aðila sem selja raforku og heitt vatn á síðasta stigi viðskipta, þ.e. sölu til notenda, en notandi telst vera sá sem endurselur ekki raforku eða heitt vatn. Undanþegnir skattskyldu skv. 1. mgr. eru þeir sem selja raforku eða heitt vatn fyrir minna en [2.000.000 kr. á hverju 12 mánaða tímabili frá því að starfsemi hefst]. Ríkisskattstjóri heldur skrá yfir skattskylda aðila samkvæmt þessari grein. Skattskyldir aðilar skulu ótilkvaddir senda ríkisskattstjóra tilkynningu um skattskylda starfsemi áður en starfsemi hefst. L. 133/2021, 9. gr.

7. gr.

7. gr. Til skattskyldrar sölu eða afhendingar telst ekki: 1. Raforka eða heitt vatn sem afhent er öðrum skattskyldum aðila. 2. Raforka eða heitt vatn sem afhent er eða notað eingöngu til framleiðslu á raforku eða heitu vatni til endursölu. Ráðherra er með reglugerð heimilt að kveða nánar á um skilyrði og framkvæmd vegna undanþágu frá greiðslu skatts af raforku og heitu vatni.

8. gr.Álagning.

8. gr. Álagning. Skattskyldir aðilar skulu við sölu eða afhendingu á raforku eða heitu vatni gefa út sölureikning þar sem eftirfarandi upplýsingar koma fram: 1. Útgáfudagur. 2. Útgáfustaður. 3. Afhendingarstaður ef annar en útgáfustaður. 4. Nafn og kennitala seljanda. 5. Nafn og kennitala kaupanda. 6. Magn, einingarverð og heildarverð á raforku eða heitu vatni. Auk upplýsinga sem tilgreindar eru í 1. mgr. skal á sölureikningi koma fram hvort skattur af raforku og heitu vatni sé lagður á og hver fjárhæð hans er. Um varðveislu sölureikninga gilda ákvæði laga nr. 145/1994, um bókhald. Álagning.

9. gr.Uppgjör og innheimta.

9. gr. Uppgjör og innheimta. Ríkisskattstjóri annast álagningu skatts af raforku og heitu vatni á þá aðila sem skráningarskyldir eru skv. 6. gr., vegna sölu þeirra á raforku eða heitu vatni. Uppgjör og innheimta.

10. gr.Uppgjörstímabil og skýrslur.

10. gr. Uppgjörstímabil og skýrslur. Skylda til að innheimta skatt af raforku og heitu vatni og standa skil á honum í ríkissjóð hvílir á þeim aðilum sem selja raforku eða heitt vatn til endanlegra notenda, í samræmi við ákvæði raforkulaga, nr. 65/2003, og orkulaga, nr. 58/1967. Skattskyldir aðilar sem hlotið hafa skráningu skv. 6. gr. skulu greiða skatt af raforku og heitu vatni fyrir hvert uppgjörstímabil miðað við sölu. Við uppgjör skatts af raforku og heitu vatni má draga frá fjárhæð sem nemur sannanlega töpuðum útistandandi kröfum eða ofgreiddum skatti, sbr. 4. mgr. 5. gr., af raforku og heitu vatni sem áður hefur verið skilað í ríkissjóð. Uppgjörstímabil og skýrslur.

11. gr.Ýmis ákvæði …

11. gr. Ýmis ákvæði … Uppgjörstímabil skatts af raforku og heitu vatni er tveir mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október, nóvember og desember. Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir. Eigi síðar en á gjalddaga skulu skattskyldir aðilar, sem hlotið hafa skráningu skv. 6. gr., ótilkvaddir skila innheimtumanni ríkissjóðs skýrslu yfir magn gjaldskyldrar raforku og heits vatns á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu skattsins. [Ráðherra] kveður í reglugerð á um greiðslustaði, greiðslufyrirkomulag og efni skýrslu, þar á meðal hvernig rafrænum skilum á skýrslu og greiðslu skuli háttað. L. 126/2011, 517. gr. Ýmis ákvæði … L. 135/2019, 36. gr.

12. gr.Skattlagning flúoraðra gróðurhúsalofttegunda.

12. gr. [Skattlagning flúoraðra gróðurhúsalofttegunda.] Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um álagningu, tilhögun bókhalds, eftirlit, upplýsingaskyldu, viðurlög, kærur og aðra framkvæmd varðandi skatt af raforku og heitu vatni, skv. II. kafla laga þessara, skulu gilda, eftir því sem við geta átt, ákvæði laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Skattur, sem lagður er á samkvæmt lögum þessum, myndar gjaldstofn til virðisaukaskatts. [III. kafli.] L. 135/2019, 37. gr. [Skattlagning flúoraðra gróðurhúsalofttegunda.] L. 135/2019, 37. gr.

13. gr.Skattskyldir aðilar.

13. gr. [Skattskyldir aðilar.] [13. gr. Skattskyldir aðilar skulu greiða í ríkissjóð sérstakan skatt á hvert kíló af flúoruðum gróðurhúsalofttegundum sem fluttar eru til landsins eftir því sem nánar er kveðið á um í þessum kafla. Með flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er átt við vetnisflúorkolefni, perflúorkolefni, brennisteinshexaflúoríð og aðrar gróðurhúsalofttegundir sem innihalda flúor eða blöndur sem innihalda einhver þessara efna. [Fjárhæð skatts á hvert kíló flúoraðrar gróðurhúsalofttegundar skal vera eftirfarandi: Tollnr. (IS)IðnaðarheitiSkattur 2812.9010Brennisteinshexaflúoríð (SF)10.000 kr./kg 3827.6110Blanda R404A9.805 kr./kg 3827.6410Blanda R407C4.435 kr./kg 3827.6420Blanda R407F4.563 kr./kg 3827.6310Blanda R410A5.220 kr./kg 3827.6210Blanda R422A7.858 kr./kg 3827.6220Blanda R422D6.823 kr./kg 3827.6120Blanda R428A9.018 kr./kg 3827.6130Blanda R434A8.113 kr./kg 3827.6430Blanda R437A4.513 kr./kg 3827.6320Blanda R438A5.663 kr./kg 3827.6510Blanda R448A3.468 kr./kg 3827.6520Blanda R449A3.493 kr./kg 3827.6140Blanda R5079.963 kr./kg 3827.5110Blanda R508B10.000 kr./kg 3827.6330Blanda R452A5.350 kr./kg 2903.4411HFC-1258.750 kr./kg 2903.4511HFC-1342.750 kr./kg 2903.4512HFC-134a3.575 kr./kg 2903.4412HFC-143883 kr./kg 2903.4413HFC-143a10.000 kr./kg 2903.4311HFC-152133 kr./kg 2903.4312HFC-152a310 kr./kg 2903.4911HFC-16130 kr./kg 2903.4611HFC-227ea8.050 kr./kg 2903.4100HFC-2310.000 kr./kg 2903.4612HFC-236cb3.350 kr./kg 2903.4613HFC-236ea3.425 kr./kg 2903.4614HFC-236fa10.000 kr./kg 2903.4711HFC-245ca1.733 kr./kg 2903.4712HFC-245fa2.575 kr./kg 2903.4200HFC-321.688 kr./kg 2903.4811HFC-365 mfc1.985 kr./kg 2903.4313HFC-41230 kr./kg 2903.4812HFC-43-10 mee4.100 kr./kg 2903.4912PFC-11610.000 kr./kg 2903.4913PFC-1410.000 kr./kg 2903.4914PFC-21810.000 kr./kg 2903.4915PFC-3-1-10 (R-31-10)10.000 kr./kg 2903.4916PFC-4-1-12 (R-41-12)10.000 kr./kg 2903.4917PFC-5-1-14 (R-51-14)10.000 kr./kg 2903.8910PFC-c-31810.000 kr./kg] Sé um að ræða innflutning á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum öðrum en þeim sem tilteknar eru í 2. mgr. skal greiða skatt miðað við eftirfarandi forsendur: 1. Fyrir flúoraðar gróðurhúsalofttegundir sem ekki eru tilteknar í 2. mgr. skal greiða skatt að fjárhæð 10.000 kr./kg. 2. Fyrir blöndur sem ekki eru tilteknar í 2. mgr. skal reikna fjárhæð skatts út frá hlutföllum þeirra efna sem blandan samanstendur af. 3. Fyrir aðrar blöndur sem ekki eru tilteknar í 2. mgr. og ekki er hægt að beita ákvæði 2. tölul. um skal greiða skatt að fjárhæð 10.000 kr./kg.] L. 98/2025, 19. gr. L. 135/2019, 37. gr. [Skattskyldir aðilar.] L. 135/2019, 37. gr.

14. gr.Álagning og innheimta.

14. gr. [Álagning og innheimta.] [14. gr. Skattskyldir aðilar samkvæmt lögum þessum eru allir þeir sem flytja til landsins flúoraðar gróðurhúsalofttegundir sem falla undir ákvæði 13. gr. Skattskyldum aðilum ber að standa skil á skattinum við tollafgreiðslu.] L. 135/2019, 37. gr. [Álagning og innheimta.] L. 135/2019, 37. gr.

15. gr.Endurgreiðsla vegna útflutnings.

15. gr. [Endurgreiðsla vegna útflutnings.] [15. gr. Tollyfirvöld annast álagningu samkvæmt þessum kafla. Skattur, sem lagður er á samkvæmt þessum kafla, myndar stofn til virðisaukaskatts. Ríkisskattstjóri annast innheimtu samkvæmt þessum kafla.] L. 135/2019, 37. gr. [Endurgreiðsla vegna útflutnings.] L. 33/2020, 34. gr. [15. gr. a. Þegar sannanlega er flutt úr landi flúoruð gróðurhúsalofttegund skv. 13. gr., sem skattur var sannanlega greiddur af við innflutning, getur skattskyldur aðili sótt um endurgreiðslu á þeim skatti hafi ekki liðið meira en 12 mánuðir frá tollafgreiðslu hennar, frá og með 1. janúar 2020. Aðili sem óskar endurgreiðslu skv. 1. mgr. skal, innan sex mánaða frá því að vara er flutt úr landi, sækja um endurgreiðslu í sérstakri skýrslu til tollyfirvalda, á því formi sem þau ákveða, þar sem m.a. eru tilgreind tollskrárnúmer flúoraðrar gróðurhúsalofttegundar, sá kílóafjöldi sem fluttur var inn undir því númeri og fjárhæð þess skatts sem sannanlega var greiddur við innflutning viðkomandi vöru. Leggja skal fram þær upplýsingar og gögn sem nauðsynleg eru til afgreiðslu umsóknar, svo sem staðfestingu tollyfirvalda á inn- og útflutningi og staðfestingu á greiðslu skattsins. Fjárhæð sem sótt er um endurgreiðslu á hverju sinni skal vera að lágmarki 10.000 kr. Fallist tollyfirvöld á umsóknina án frekari skýringa skal endurgreiðsla fara fram eigi síðar en 30 dögum eftir að umsókn er lögð fram, enda hafi fullnægjandi upplýsingar og gögn fylgt henni.] L. 33/2020, 34. gr. [Ýmis ákvæði.] L. 135/2019, 37. gr.

16. gr.

16. gr. [16. gr. Að svo miklu leyti sem ekki er á annan veg kveðið á um í þessum kafla skulu ákvæði tollalaga, nr. 88/2005, eiga við um álagningu, innheimtu, tilhögun bókhalds, eftirlit, upplýsingaskyldu, viðurlög, kærur og aðra framkvæmd skattheimtu samkvæmt þessum kafla. Ráðherra getur með reglugerð sett nánari fyrirmæli um framkvæmd þessa kafla.] L. 135/2019, 37. gr.

17. gr.

17. gr. [17. gr.] Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2010. [2. mgr. 5. gr. laganna, skattur af raforku, fellur úr gildi 31. desember 2015.] L. 135/2019, 37. gr. L. 146/2012, 17. gr. [Ákvæði til bráðabirgða. I. Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 1. gr. skal fjárhæð kolefnisgjalds vera 10,40 kr. á hvern lítra af gas- og dísilolíu, 9,10 kr. á hvern lítra af bensíni, 12,80 kr. á hvert kílógramm af brennsluolíu og 11,40 kr. á hvert kílógramm af jarðolíugasi og öðru loftkenndu kolvatnsefni til 1. janúar 2020.] L. 138/2018, 2. gr. [II. Þrátt fyrir ákvæði 13. gr. skal á árinu 2020 greiða helming þeirra fjárhæða skatts sem þar eru tilteknar af flúoruðum gróðurhúsalofttegundum sem fluttar eru til landsins.] L. 135/2019, 38. gr.